Á Íslandi er í dag mikil velmegun. Glæsibílar seljast sem aldrei fyrr og flugfélög og ferðaskrifstofur anna varla eftirspurn. Krónan er sterk og kaupmáttur góður. Þetta er veruleikinn og af hverju segjum við ekki hlutina eins og þeir eru?
Stapi lífeyrissjóður sendir út sjóðfélagayfirlit fyrir lok aprílmánaðar. Vegna breytinga á mótframlagi launagreiðenda hefur sjóðurinn breytt lítillega útliti yfirlitanna. Breytingin felst í því að nú er hægt að sjá hlutfallstölu iðgjalds og mótframlags fyrir aftan nafn launagreiðanda.
Ensk þýðing á grunntexta sjóðfélagayfirlita er aðgengileg á heimasíðu sjóðsins.
Á aðalfundi AFLs sl. laugardag var samþykkt að hækka hlutfall sjúkradagpeninga af viðmiðunarlaunum í 85% og síðan 90% um næstu áramót. Jafnframt að hámarksupphæð dagpeninga að viðbættum sjúkradagpeningum TR gætu orðið 900.000 á mánuði.
Fundinn, sem haldinn var á Hótel Héraði á Egilsstöðum, sóttu um 50 félagsmenn eða heldur færri en síðustu ár. Ekki bárust önnur framboð til stjórnar en tillaga uppstillinganefndar og var hún því sjálfkjörin. Kosið var um 3 meðstjórnendur en á næsta ári verður kosið um formann og þrjá meðstjórnendur.
Sjóðir félagsins komu allir út með lítilsháttar afgang nema verkfallssjóður.
Yfirlitunum fylgir fréttabréf þar sem meðal annars er fjallað um nýtt fyrirkomulag sjóðfélagalána, hækkun mótframlags, hálfan lífeyri og kosti séreignar auk þess sem sjóðfélagar eru hvattir til að fara vel yfir yfirlit og ganga úr skugga um að mótframlag sé rétt. Ef sjóðfélagar eru óvissir hvert mótframlag á að vera er þeim bent á að hafa samband við viðkomandi stéttarfélag.