Trúnaðarmaður til hvers?
Hagdeild Alþýðusambands Íslands spáir því að efnahagslegur bati verði fyrst sjáanlegur 2022 með 3,4% hagvexti. Á næsta ári er spáð 1,8% hagvexti og þá með því fororði að Covid faraldurinn verði á undanhaldi og alþjóðaflug komið af stað. Útlit er fyrir frekari samdrátt í einkaneyslu á síðari hluta ársins og að vöxtu á næsta ári verði hægur. Atvinnuleysi mun fara vaxandi og stefnir í 8,6% á fyrri hluta næsta árs en stefnir síðan í tæp 7% með viðsnúningi í ferðaiðnaði.
Verðbólga fer heldur vaxandi og er verðbólgumarkmið Seðlabanka um 3,3% á næsta ári. 2022 stefnir í að verðbólgumarkmið upp á 2,5% gætu orðið raunhæf.
Nýtt námskeið fyrir fólk í leit að atvinnutækifærum - 100% fjármögnun af fræðslusjóðum
Markmið námskeiðsins eru:
Fyrirkomulag: Einu sinni í viku í tvo og hálfan tíma í senn í 6 skipti og fer fram LIVE ONLINE á netinu. Fjórum vikum eftir að námskeiði lýkur er síðan boðið upp á eftirfylgnitíma í 90 mínútur.
Námskeiðsgjaldið er að fullu greitt af fræðslusjóðunum Landsmennt, Ríkismennt, Sveitamennt og Sjómennt og sendir Dale Carnegie reikninginn fyrir þátttökugjaldinu beint á fræðslusjóðina.
Upplýsingar um næstu námskeið og skráning er á www.dale.is/bokanir
Það sem við förum yfir á námskeiðinu:
Námskeiðinu fylgir rafræn handbók á íslensku, gullna reglubókin og annað ítarefni.
Live Online fjárþjálfun á sér stað í rauntíma þar sem þátttakendur taka virkan þátt. Það eru tveir þjálfarar á því námskeiði þar sem annar er með fókus á tæknihliðinni. Við notum Webex frá Cisco sem er sérhannað þjálfunarumhverfi sem hentar námskeiðunum okkar.
Öryggistrúnaðarmenn og öryggisverðir
Öryggistrúnaðarmenn og öryggisverðir hafa mikilvægu hlutverki að gegna innan hvers fyrirtækis. Eitt af þeirra mikilvægustu störfum er þátttaka í gerð áætlunar um öryggi og heilbrigði á vinnustað sem öllum vinnustöðum ber að hafa. Öryggistrúnaðarmaður sinnir vinnuvernd í samvinnu við öryggisvörð og fylgist með því að aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustað séu í samræmi við vinnuverndarlög. Öryggistrúnaðarmenn eru kjörnir af starfsmönnum en öryggisverðir eru atvinnurekandinn sjálfur eða fulltrúi/fulltrúar sem hann skipar í sinn stað.
Samkvæmt reglugerð 920/2006 ber atvinnurekendum að sjá til þess að öryggisverðir og öryggistrúnaðarmenn hljóti viðeigandi fræðslu og þjálfun meðal annars með því að sækja námskeið um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum sem gera þeim kleift að sinna hlutverki sínu. Alþjóðlegar rannsóknir hafa sýnt að fjárhagslegur ávinningur af öflugu vinuverndarstarfi er umtalsverður. Rannsókn á 300 fyrirtækjum í 16 löndum sýndi fram á að fjárfesting í vinnuvernd skilaði sér ríflega tvöfalt til baka í ábata fyrir fyrirtæki (Bräuning og Kohstall, 2012). Vandað vinnuverndarstarf skilar sér í bættu öryggi, líðan og vinnuumhverfi starfsfólks, fækkun fjarvista vegna veikinda og dregur úr kostnaði vinnuveitenda. Því er til mikils að vinna.
Næsta námskeið Vinnuverndarskóla Íslands fyrir öryggistrúnaðarmenn og öryggisverði verður haldið þann 18. nóvember næstkomandi í fjarnámi. Skráning og frekari upplýsingar
Námskeið um einelti og áreitni
3. nóvember - fjarnám
Á námskeiðinu er fjallað um hvað hægt er að gera til að draga úr líkum á einelti og áreitni á vinnustað, ásamt því hvernig tekið er á slíkum málum, komi þau upp.
Frekari upplýsingar og skráning
Sjómannasamband Íslands, Farmanna-og fiskimannasambandið
og Félag Vélstjóra og málmtæknimanna hafa gefið út
viðmiðunarreglu um hvernig greiða skal hlut fyrir þátttöku í
togararalli Hafrannsóknarstofnunar.
Hlutaskipti skulu reiknast af þeim aflaverðmætum sem fást á
rallinu að viðbættum verðmætum veiðiheimilda sem útgerðin
fær fyrir þátttöku í rallinu.
Viðmiðunarregla þessi var gefin út 2015 en rétt er að árétta að hún er enn í fullu gildi.
Félagsmenn aðildarfélaga Landsmenntar, Ríkismenntar, Sveitamenntar og Sjómenntar fá íslenskunámskeið að fullu niðurgreitt.
Í ljósi þess að borið hefur á aukinni eftirspurn eftir íslenskunámskeiðum þá hafa stjórnir sjóðanna ákveðið að gera samninga við símenntunarmiðstöðvar til að auka framboð á íslenskunámskeiðum og bjóða upp á fulla fjármögnun íslenskunámskeiða fram að áramótum.
Skráning fer fram hjá símenntunarmiðstöðvum og þá skiptir ekki máli hvort félagsmenn skrái sig sjálfir eða séu skráðir af atvinnurekanda inn á námskeiðin, hvort sem heldur þá verður um fulla fjármögnun að ræða til áramóta.
Hægt að sjá allar símenntunarmiðstöðvar um allt land hér: https://fraedslumidstodvar.is/
Námskeiðin eru að hluta til í fjarnámi og að hluta til í staðbundnu námi með takmörkuðum fjölda þátttakenda út af takmörkunum vegna sóttvarna.
Þetta framboð á fríum námskeiðum (full fjármögnun námskeiða) sem hafa verið að birtast að undanfarið frá sjóðunum, hefur engin áhrif á réttindi viðkomandi félagsmanna vegna annarrs náms, þessi námskeið eru viðbót og kostnaður vegna þeirra er ekki dregin frá réttindum viðkomandi félagsmanna.