AFL starfsgreinafélag

Til góðra verka

 

AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag

Let's travel domestically this year

FerdumstInnanlands

See more

Every year AFLs holiday fond offers our members hotel vouchers at a discount as well as some other leisure discounts.  This year the hotels are offering special deals.  Fosshótels are offering half the usual summer price.  KEA hotels are offering about the same and our newest partner, Hótel Ísland in Reykjavík is offering a good price.(Breakfast included at all hotels except for Hótel Edda)

We are also selling “The Fishing Card” that gives access to 34 lakes across Iceland. http://veidikortid.is/en/ 

Also we are selling the “Camping Card” giving access to over 70 campsites     https://utilegukortid.is/flokkur/camping-sites/?lang=en

AFL buys these cards in bulk at a discount and then the holiday fond gives a further discount. (Basically selling these cards and vouchers at a loss – but only to members of AFL).

AFL´s members can buy hotel vouchers on “my pages” at our website  www.asa.is (mínar síður). As soon as you log on – you can choose “English, Polish or Lithuanian” in the language settings (top right).

AFL is not a travel bureau so please contact the hotels with further enquiries and book directly with the hotels.  In some cases there will be surcharges – (Fosshotels at four stars hotels) and for upgrades at other hotels or for extra cots). 

Please notice that the vouchers we sell for Eagle Air are only valid on the leg HÖFN – Rvík, Rvík – HÖFN.

Ferðumst innanlands í sumar! Hótelin gera okkur tilboð

hotel

Hótelin sem AFL hefur verið í samstarfi við síðastliðin ár gera félagsmönnum okkar tilboð í sumar. Verð á gistingu á Hótel KEA á Akureyri verður óbreytt í sumar - þ.e. vetrarverðið gildir áfram en venjulega hefur verið veruleg verðhækkun yfir sumarmánuðina. Sömuleiðis hafa Fosshótel gert félagsmönnum tilboð - þannig að í sumar gildir ein gistiávísun í stað tveggja sem hefðbundið er á sumrin. Þá hefur AFL gert samning við Hótel Ísland við Ármúla (https://hotelisland.is/ ). Tveggja manna herbergi með morgunmat er þar á kr. 12.000,- Félagsmönnum AFLs stendur því til boða gisting víða um landið í sumar á verði frá kr. 11.500  og upp í krónur 15.000 á Hótel KEA r. Þeim félagsmönnum sem ætla til Reykjavíkur og gista ein nótt - má benda á að gisting á Hótel Íslandi er hagstæður valkostur því þar er gistingin með morgunverði innifalin. (10.000 kr. fyrir eins manns og 12.000 kr. fyrir tveggja manna herbergi.) Sjá innri vef AFLs  (Ath. allar gistingar eru með morgunverði nema Hótel Edda)

AFL afhendir Björgunarsveitinni Báru húsnæði!

sambudSeld20

AFL Starfsgreinafélag afhenti í gær Björgunarsveitinni Báru á Djúpavogi til eignar - hluta AFLs í húsinu Sambúð, Mörkinni 12 á Djúpavogi.  Sambúð var byggð 1989 í samvinnu björgunarsveitarinnar og Verkalýðsfélags Djúpavogs.  Eignarhlutur AFLs var um 90 fm og er félagið með skrifstofu þar en hefur leigt Austurbrú annan hluta húsnæðisins. 

Húsið er orðið talsvert viðhaldsþurfi og björgunarsveitin þarf meira húsnæði undir starfssemi sína. Síðustu ár hafa verið viðræður m.a. við sveitarfélagið um framtíðarskipan húsnæðismála björgunarsveitarinnar en án þess að viðunandi lausn fengist.  Þörf AFLs á stóru húsnæði á Djúpavogi hefur farið minnkandi síðustu ár þar sem fjölmennir félagsfundir hafa verið fáir og þeir sem haldnir hafa verið á Djúpavogi hafa verið á hótelinu þar sem salurinn í Sambúð er of lítill fyrir almenna fundi alls félagsins.

Stjórn AFLs samþykkti einróma að ganga til samnings við Báru um húsið og félagið leitaði einnig til eldri félagsmanna og fyrrverandi formanns Verkalýðsfélagsins og var það einróma álit þeirra sem rætt var við, að færa sveitinni húsið til eignar.

Sem endurgjald mun björgunarsveitin sjá AFLi fyrir viðunandi skrifstofuaðstöðu í þrjú ár.  Skrifstofa AFLs á Djúpavogi er opin tvisvar í viku, á þriðjudögum og fimmtudögum frá 14 : 16.

Á myndinni eru Ingi Ragnarsson, formaður Báru, og Kristborg Ásta Reynisdóttir, gjaldkeri Bárunnar að ganga frá samningnum við Reyni Arnórsson, stjórnarmann í AFLi og Guðrúnu Aradóttur, starfsmann AFLs á Djúpavogi.

Orlofshús - orlofsíbúðir: Tvær tilkynningar

A Einarsst hus9all

Laus tímabil í orlofshúsum félagsins í sumar verða í dag boðin á orlofsvef félagsins án úthlutunar.  Þeir sem fengu úthlutað hafa nú greitt leigu sína að fullu og þeir sem eru á biðlista hafa haft tök á að þiggja óúthlutuð tímabil og því verða þau tímabil sem út af standa - boðin á vef félagsins í dag.  Þeir sem eru á biðlista halda stöðu sinni þar áfram.

Fyrirvari til að afbóka íbúðarleigu og fá endurgreiðslu hefur verið lengdur í 5 daga og gildir það frá og með morgundeginum.  Þegar Covid-19 faraldurinn skall á - stytti félagið frest til afbókunar úr 10 dögum niður í 0 - þar sem mannamótum var aflýst og lækniserindi afboðuð.  Íbúðir okkar hafa staðið hálftómar síðan en nú er eftirspurn orðin verulega meiri og því ástæða til að herða endurgreiðslureglurnar aftur.  Það verður gert í skrefum - þ.e. í 5 daga núna en búast má við að 10 daga reglan taki við fljótlega eða um mánaðarmót.

Starfsgreinasambandið styður Eflingu - ályktanir formannafundar SGS

EflingSamn

Ályktun frá fundi formanna SGS

Formannafundur Starfsgreinasambands Íslands, 8. maí 2020. Skorar á Ríkið, Samband Íslenskra sveitarfélaga og aðra atvinnurekendur að ganga þegar til saminga við  þau félög sem ósamið er við. Það er með öllu óásættanlegt að launafólk sé samningslaust mánuðum saman og ólíðandi að ekki sé gengið að réttmætum kröfum né staðið við fyrri yfirlýsingar og fyrirheit.

Einnig er minnt á stuðningsyfirlýsingu Miðstjórnar ASÍ við verkfall Eflingar og áskorun Verkalýðsfélags Vestfirðinga um kjaradeilu lögreglumanna.

Yfirlýsing Miðstjórnar ASÍ

Miðstjórn Alþýðusambands Íslands lýsir yfir fullum stuðningi við verkfall Eflingar sem er nú hafið í Kópavogi, Seltjarnarnesi, Mosfellsbæ, Hveragerði og sveitarfélaginu Ölfus.

Samningar Eflingarfélaga eru lykilþáttur í að bæta kjör þeirra sem lægst hafa launin í íslensku samfélagi. Samningar í fyrrnefndum sveitarfélögum hafa verið lausir í rúmt ár og viðræður hafa engum árangri skilað. Samband íslenskra sveitarfélaga hefur neitað að gera kjarasamning við Eflingu sambærilegan þeim sem Ríkið, Reykjavíkurborg og Faxaflóahafnir hafa þegar gert. Boðun verkfalls var samþykkt með 90% atkvæða þeirra sem tóku þátt í atkvæðagreiðslu.

Miðstjórn ASÍ hvetur félagsmenn allra aðildarsamtaka sinna og annað launafólk til að virða aðgerðir Eflingar og stuðla að því að verkfallsbrot verði ekki framin.


 

 Áskorun stjórnar Verkalýðsfélags Vestfirðinga um kjaradeilu lögreglumanna við ríkið
LogreglaS

Sú staða sem er uppi í samningaviðræðum lögreglumanna við ríkisvaldið er með öllu óboðleg og ríkisvaldinu ekki til sóma. Lögreglumenn eru með lausa samninga og enn hefur forystufólk ríkisstjórnarinnar ekki staðið við yfirlýsingar sem lögreglumönnum hefur verið lofað. Staða þessi er mjög alvarleg, sér í lagi þar sem lögreglumenn njóta ekki þeirra sjálfsögðu mannréttinda að hafa verkfallsrétt.

Flestum er kunnugt hversu mikilvægu hlutverki lögreglumenn gegna í samfélaginu, þeirra störf eru oft á tíðum unnin við hættulegar og krefjandi aðstæður á vettvangi slysa, glæpa og náttúruhamfara. Þegar við höldum okkur heima, þá eru lögreglumenn sendir á vettvang.

Í Covid faraldrinum sem nú gengur yfir hefur mikið mætt á lögreglumönnum og þeir berskjaldaðir fyrir þeirri vá vegna nálægðar við skjólstæðinga sína. Þær aðstæður sem lögreglumenn vinna við og sú vinna sem þeir inna af hendi alla daga skipar þeim klárlega í Framlínusveit Íslands.

Af fréttum undangengnar vikur hefur sú staða legið í loftinu að algjört áhugaleysi ríki í herbúðum samninganefndar ríkisins. Mögulega gæti þar spilað stórt hlutverk að lögreglan hefur ekkert verkfallsvopn í að grípa. Að sýna fólki slíkt virðingaleysi er með öllu óskiljanlegt ef rétt reynist.

Verkalýðsfélag Vestfirðinga skorar því á ríkisstjórn Íslands og samninganefnd ríkisins við Landssamband Lögreglumanna að setjast strax að samningaborðinu og sýna lögreglumönnum þann sóma sem þeir sannarlega eiga skilið í störfum sínum fyrir land og þjóð .

Að lokum hvetur félagið önnur stéttarfélög til að sýna lögreglumönnum stuðning í baráttu þeirra fyrir leiðréttingu á kjörum sínum.

Með vinsemd og virðingu,

Stjórn Verkalýðsfélags Vestfirðinga

 

 

einn rettur logo 002            VIRK starfsendurhæfingasjóður     vertuaverdi