Félagsmenn AFLs Starfsgreinafélags – launafólk Nú stefnir í harðari aðgerðir á vinnumarkaði en verið hafa undanfarna áratugi. Miðað við stöðu í kjaraviðræðum virðist stefna í að félagið muni bera verkfallsboðanir undir félagsmenn í almennri atkvæðagreiðslu.
Búast má við að skrifstofum AFLs verði lokað að hluta eða öllu fimmtudag og föstudag 5. - 6. febrúar þar sem unnið er að uppfærslu tölvukerfa. Um helgina mun ný heimasíða félagsins fara í loftið og þar verða virkjaðar "mínar Síður" fyrir félagsmenn með margvíslegum upplýsingum
Umsóknarfrestur um orlofsdvöl í íbúð félagsins við Alicante. Íbúðin er í úthverfi bæjar sem heitir Torrevieja og er í u.þ.b. 30 mín akstursfjarlægð frá Alicante. Í húsinu eru 3 svefnherbergi og rúm fyrir 8 manns. Allur annar búnaður er í húsinu (handklæði, rúmföt og stranddót). Leigt er í hálfan mánuð í einu og er leiga 57.000,- fyrir félagsmenn. Fyrstur kemur fyrstur fær! 14. mars - 28. mars, 28. mars - 11. apríl, 11. apríl - 25. apríl, 25. apríl - 9. maí. 23. maí - 6 júní. Úthlutað: 6. júní - 20. júní, 20. júní - 4. júlí, 4. júlí - 18. júlí, 1. ágúst - 15. ágúst, 5. sept. - 19. sept., 19. sept., - 3. okt. Sækja má um á skrifstofum AFLs fyrir 17. febrúar nk. Úthlutað verður 19. febrúar.