Samningaviðræður standa yfir í deilu iðnaðarmanna í Samiðn, þ.m.t. í Iðnaðarmannadeild AFLs Starfsgreinafélags og Samtaka Atvinnulífsins. Takist ekki samningar skellur á verkfall á miðnætti á mánudagskvöld. Verkfallið á Austurlandi mun taka til allra iðnaðarmanna innan AFLs Starfsgreinafélags nema þeirra sem starfa hjá ALCOA Fjarðaál og undirverktökum ALCOA sem starfa á athafnasvæði verksmiðjunnar.
Birtar verða fréttir á heimasíðunni á mánudag um framvindu samningaviðræðna og undirbúning verkfalls - komi til þess.
19. júní 2015 eru liðin 100 ár síðan stór hluti kvenna fékk kosningarétt og kjörgengi í fyrsta sinn á Íslandi. Sama dag fengu vinnumenn og aðrir eignalausir karlmenn 40 ára og eldri einnig kosningarétt.
Þó 19. júní sé fyrst og fremst minnst sem dagsins sem konur fengu kosningarétt er það einnig dagur þar sem hin snauða alþýða fékk kosningarétt að einhverju leyti.
Fyrir ungt fólk, fátæka og konur hefur kosningaréttur ekki verið sjálfsagður hlutur. 1843 höfðu aðeins ríkustu karlmenn kosningarétt – eða um 2% landsmanna. Jafnrétti var síðan náð með áföngum þannig að það var ekki fyrr en 1984 sem allir þeir sem skilgreindir eru sem fullorðnir – þ.e. 18 ára og eldri fá fullan kosningarétt án tillits til kyns eða stöðu í samfélaginu.
Rafræn atkvæðagreiðsla verkamannadeildar félagsins um nýgerða kjarasamninga við Samtök atvinnulífsins er hafin og lýkur 22. júní kl. 12:00 á hádegi. Kjörgögn með nánari upplýsingum eru að berast félagsmönnum.. Aðgangur að rafrænum atkvæðaseðli er á heimasíðu SGS. Félagsmönnum er einnig velkomið að greiða atkvæði með rafrænum hætti á skrifstofum AFLs ef þeir þurfa aðstoð við að komast inn á aðganginn.
Rafræn atkvæðagreiðsla verslunarmannadeildar félagsins um nýgerða kjarasamninga við Samtök atvinnulífsins hefst 10. júní 2015 kl. 9:00 og lýkur 22. júní kl. 12:00 á hádegi. Kjörgögn með nánari upplýsingum berast félagsmönnum á næstu dögum. Aðgangur að rafrænum atkvæðaseðli er á heimasíðu LÍV. Félagsmönnum er einnig velkomið að greiða atkvæði með rafrænum hætti á skrifstofum AFLs meðan á kjörfundi stendur. Þar fást jafnframt nánari upplýsingar.
Síðustu daga hafa staðið yfir viðræður milli Samiðnar, f.h iðnaðarmannadeildar AFLs ásamt fleiri iðnarmannafélögunum við SA um endurnýjun kjarasamninga. Samiðn, Grafía /FBM, Félag hársnyrtisveina og SA hafa orðið sammála um að stefna að því að ljúka samningum fyrir 12. júní n.k. náist samkomulag um sérkröfur fyrir þann tíma. Samninganefndir þessara félaga og sambanda og SA hafa orðið sammála um að fresta boðuðum verkföllum sem hefjast áttu 10. júní til 22. Júní. Hluti þeirra iðnaðarmannafélaga sem voru í samflotinu hafa ekki frestað boðuðum verföllum.