Aðalfundur verslunarmannadeildar
verður haldinn í húsnæði félagsins að Víkurbraut 4 Hornafirði
þriðjudaginn 22. apríl kl 18:00.
Fundarefni:
1. Skýrsla formanns deildarinnar
2. Kjaramál
3. Stjórnarkjör
4. Önnur mál.
Aðalfundur iðnaðarmannadeildar
Boðað er til aðalfundar Iðnaðarmannadeildar AFLs Starfsgreinafélags miðvikudaginn 16. apríl kl. 18:00 að Búðareyri 1, Reyðarfirði.
Dagskrá;
1. Skýrsla formanns -
2. Kjör stjórnar
3. Kjaramál
4. Önnur mál
Þeir sem þess óska geta verið með á fundinum á síma - nánari upplýsingar á skrifstofum félagsins.
Aðalfundur verkamannadeildar
Verður haldinn í húsnæði félagsins að Búðareyri 1 Reyðarfirði mánudaginn 14 apríl kl 17:00
Fundarefni:
1. Kjaramál
2. Skýrsla formanns um liðið starfsár
3. Kosning stjórnar.
4. Önnur mál.
AFL Starfsgeinafélag verkamannadeild
Samið við ríkið
Samningstíminn er frá 1. mars 2014 – 30. apríl 2015.
Kynningarfundir verða í næstu viku og í framhaldi af því fer hann í atkvæðagreiðslu meðal félagsmanna sem eftir honum starfa. sjá samning hér
Nýr kjarasamningur vegna uppstokkunar eða beitningu í landi
Starfsgreinasamband Íslands og Landssamband Smábátaeigenda hafa undirritað nýjan kjarasamning vegna starfsmanna sem vinna við uppstokkun eða beitningu í landi. Samningurinn gildir jafnframt fyrir starfsmenn sem starfa við netavinnu.
Aðalatriði samningsins er hækkun kauptryggingar í 236.095 krónur og eingreiðsla uppá 14.600 krónur til þeirra sem voru í fullu starfi í janúar 2014. Desember- og orlofsuppbætur hækka um samtals 32.300 krónur líkt og í aðalkjarasamningi SGS og SA. Orlofsrétturinn var töluvert styrktur þar sem fólk sem starfað hefur við beitningu eða netafellingu í 10 ár fær nú 30 daga orlofsrétt, en áður var sá réttur bundinn við að starfa hjá sama fyrirtæki í 10 ár. Réttur til að fá hlífðarfatnað var einnig styrktur og er nú tekið fram í samningnum að atvinnurekandi skuli leggja til svuntu, viðeigandi vettlinga, stígvél, buxur og slopp. Hlutfall af greiðslu fyrir uppstokkun á bjóða var lækkað úr 82% í 74%. Hægt er að kynna sér samninginn í heild hér.
Vefflugan-Lífeyrisgátt
Vefflugan er vefréttablaði sem Landssamtök lífeyrissjóða hafa gefið út og kynntu nýverið. Í því er hægt að finna ýmislegt gagnlegt um starfsemi lífeyrissjóða sem og fróðleik um lífeyrismál almennt. Smellið hér til að skoða fyrstu útgáfu af Vefflugunni. Í fréttabréfinu er Lýfeyrisgáttin kynnt sem er öflugt tæki fyrir sjóðfélaga til að afla upplýsinga um áunnin lífeyrisréttindi sín í öllum samtryggingarsjóðum landsins. Upplýsingar um réttindi koma fram á yfirlitum til sjóðfélaga en margir eiga réttindi mun víðar en þar kemur fram. Til að skoða sín réttindi er farið á http://lifeyrisgatt.is/
Fleiri greinar...
- Myndasamkeppni 2013
- Góður sigur í Héraðsdómi Austurlands
- Kaupskrá sem gildir frá 1. mars 2014
- Launahækkun 1. mars hjá starfsmönnum sveitarfélaga.
- Samningur vegna bændabýla
- Alcoa samningur felldur
- Bræðslusamningar samþykktir
- Verslunarmenn samþykka sáttatillögu.
- Kjörfundur um ALCOA samning
- Kynningarfundir um nýgerða kjarasamninga
- Verslunarmenn í AFli semja
- Skrifað undir. kjarasamning við Alcoa
- Nærum okkur vel!
- Orlofsíbúð AFLs á Spáni
- Páskaúthlutun páskavikuna 16. - 23. apríl. 2014
- Launahækkun – ólokin mál og framtíðin!
- Almennur félagsfundur í verslunarmannadeild.
- AFL samþykkir og fellir nýgerða kjarasamninga
- Atkvæðagreiðslu að ljúka
- Fjarðabyggð fellur frá áður boðuðum hækkunum á gjaldskrá.
- Stefnir í góða kjörsókn
- Miðstjórn ASÍ - Hækkið ekki!
- Kynningarfundir og afgreiðsla á nýgerðum kjarasamningum
- Öryggisverðir og skúringar
- Afgreiðsla AFLs á kjarasamningunum