AFLs Starfsgreinafélags verður haldinn mánudaginn 23. mars kl. 18:00 að Búðareyri 1, Reyðarfirði. Hafið samband við næstu skrifstofu varðandi skipulag ferða á fundinn.
Dagskrá: 1. Skýrsla formanns 2. Kjör stjórnar 3. Kjaramál 4. Önnur mál
Eins og fram hefur komið hefur slitnað upp úr viðræðum Starfsgreinasambandsins við Samtök Atvinnulífsins. Verkamannadeild AFLs er með umboð sitt fyrir almenna markaðinn að mestu leiti hjá Starfsgreinasambandinu. Þetta þýðir því að slitnað hefur upp úr viðræðum AFLs fyrir verkafólk á almenna markaðnum en kjarasamningarnir runnu út í febrúarlok.
AFL-Starfsgreinafélag efnir til fjögurra félagsfunda á næstu dögum í tengslum við gerð mótun kröfugerðar félagsins vegna komandi kjaraviðræðna. Síðar í mánuðinum verði svo kröfugerðn send Starfsgreinasambandi Íslands, sem svo leggur fram kröfugerð aðildarfélaga sinna. Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir formaður AFLs segir fundina mikilvæga.
„Kröfur okkar eru bæði sanngjarnar og eðlilegar. Grundvallaratriði er að fólk geti framfleytt sér og sínum af dagvinnulaunum í stað þurfa að treysta á yfirvinnu, aukavinnu og akkorð,“ segir Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir formaður AFLs Starfsgreinafélags á Austurlandi.
Sjómannasamband Íslands, Farmanna-og fiskimannasambandið og Félag Vélstjóra og málmtæknimanna hafa gefið út viðmiðunarreglu um hvernig greiða skal hlut fyrir þátttöku í togararalli Hafrannsóknarstofnunar. Hlutaskipti skulu reiknast af þeim aflaverðmætum sem fást á rallinu að viðbættum verðmætum veiðiheimilda sem útgerðin fær fyrir þátttöku í rallinu. „Að gefnu tilefni vill Farmanna- og fiskimannasamband Íslands, Sjómannasamband Íslands og VM-Félag vélstjóra og málmtæknimanna því árétta við útgerðir þeirra skipa sem þátt taka í togararallinu hvernig uppgjöri til skipverja skuli háttað vegna þessa verkefnis. Aflaverðmæti skipsins skal miðast við andvirði þess afla sem seldur er af skipinu að viðbættu verðmæti þeirra veiðiheimilda sem útgerðin fær á grundvelli tilboðsins frá Hafrannsóknastfnuninni fyrir að taka þátt í verkefninu.“
Félagsmenn AFLs Starfsgreinafélags – launafólk Nú stefnir í harðari aðgerðir á vinnumarkaði en verið hafa undanfarna áratugi. Miðað við stöðu í kjaraviðræðum virðist stefna í að félagið muni bera verkfallsboðanir undir félagsmenn í almennri atkvæðagreiðslu.