Aðgerðarhópur SGS - sem mun gera tillögur til stjórnar Starfsgreinasambandsins um aðgerðir til að knýja á um gerð kjarasamninga, hélt sinn fyrsta fund sl. mðvikudag og hefur verið boðaður ná nýju á fund á mánudagsmorguninn.
Hópurinn hittist á miðvikudag að loknum fundi aðalsamninganefndar Starfsgreinasambands Íslands, þar sem Kristján Gunnarsson, formaður sambandsins, fór yfir stöðu samningamála.
Starfsgreinasamband Íslands, landssamband almenns verkafólks, hefur skipað aðgerðarnefnd vegna stöðu í kjaraviðræðum við atvinnurekendur. Samningaviðræður hafa staðið síðan í byrjun desember en litlum árangri skilað. Því má búast við að nefndin skili tillögum til framkvæmdastjórnar SGS í næstu viku um mögulegar verkfallsboðanir.
Síðustu daga hefur Hjördís Þóra, formaður AFLs, verið að funda með ríkisstarfsmönnum innan AFLs til undirbúnings kröfugerðar vegna kjarasamninga AFLs/SGS við ríkið en þeir eru lausir 31. mars nk. Í gær, sunnudag, var fundað á Egilsstöðum en fyrirhuguðum fundi á Vopnafirði var aflýst vegna ófærðar.
AFL Starfsgreinafélag býður félagsmönnum á Reyðarfirði sem og
annars staðar að þiggja kaffi og veitingar á Fjarðahóteli Reyðarfirði
laugardaginn 19. janúar í tilefni 100 ára afmælis
Verkalýðsfélags Reyðarfjarðar. Kaffisamsætið stendur frá kl. 15:00 - 17:00. Verið velkomin.
Elías G. Magnússon, forstöðumaður Kjarasviðs VR, var leiðbeinandi á námskeiði AFLs sl. Fimmtudag. Námskeiðið sem ætlað var starfsfólki félagsins fjallaði um gæðastaðla og verkferla.
Í síðustu viku lauk trúnaðarmannanámskeiði I á vegum AFLs Starfsgreinafélags. Námskeiðið var haldið að Kirkjumiðstöðinni á Eiðum en þar er góð aðstaða til námskeiða af þessari stærð.
Leiðbeinandi var Sigurlaug Gröndal og stóð námskeiðið í 2 daga og var sótt af 21 trúnaðarmanni, nýkjörnum sem reynsluboltum. Mynd Valborg