Góðu þingi SGS lokið - glæsilegur hópur þingfulltrúa AFLs
1. þingi SGS lauk í dag og átti AFL Starfsgreinafélag 16 fulltrúa á þinginu. Á heimasíðu Starfsgreinasambandsins www.sgs.is má sjá ályktanir þingsins. Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir, formaður AFLs var kjörin í framkvæmdastjórn SGS og Sverrir Albertsson, framkvæmdastjóri AFLs var kosinn formaður Iðnaðarsviðs SGS og þar með í framkvæmdastjórn SGS einnig.
Þingfulltrúar alls staðar af landinu fylgdust með fréttum af málefnum Lettneskra starfsmanna GT er leituðu til AFLs og veittu tillögu fulltrúa AFLs um áskorun til félagsmálaráðherra um rannsókn á málinu, fylgi með dynjandi lófataki.
Þing SGS skorar á Jóhönnu
Á meðan þing SGS stendur í Reykjavík dvelja 13 Letta í skjóli AFLs á Egilsstöðum eins og fram hefur komið fram í fréttum. Í gær bárust þær fréttir inn á þing SGS að lögreglan vildi ekki taka skýrslur af mönnunum þrátt fyrir ásakanir um að þeir hefðu með þvingunum og hótunum verið látnir kvitta fyrir mun hærri launum en greidd voru. Skýring lögreglu ku hafa verið að refsiákvæði vantaði í lög um atvinnuréttindi erlendra starfsmanna.
Af þessum sökum leituðu fulltrúar AFLs til félaga sinna á þinginu og meðfylgjandi áskorun var samþykkt.
Bæjarstarfsmenn - endurmat á leiðinni
GT óskar rannsóknar - gott mál segir AFL
Í dag sendi fyrirtækið GT verktakar út fréttatilkynningar þar sem AFL Starfsgreinafélag er sagt hafa vænt tvo einstaklinga, starfsmenn GT, um fjárdrátt. Undirritaður, framkvæmdastjóri AFLs kannast ekki við að félagið hafi vænt nokkra einstaklinga um fjárdrátt - en forráðamenn GT vita ef til vill best hvað varð um þann mun greiddra launa og reiknaðra samkvæmt launaseðlum, sem starfsmenn fyrirtækisins segja hafa vantað í launaumslög sín.
Hnattvæðing - kjaramál
Fleiri greinar...
- Tölvupóstur og kæra
- Átaki fagnað en................
- Forsætisráðherra leiðrétti ójöfnuð!
- Uppsagnir í sjávarútvegi
- Samninganefnd kosin
- Verkfallssjóður til umræðu
- Skattleysismörkin upp - styttri vinnuvika
- Kjaramálaráðstefna - lokun skrifstofa
- AFL ályktar um mjólkustöð
- Iðnaðarmenn - boðað til stofnfundar deildar