Vinningshafar Viðhorfskönnunar
Vinningshafar í viðhorfskönnun AFLs og Einingar Iðju sem fram fór október 2013.
. | Happad. nr. | Vinningur |
1 | EN9SU2TR4 | 100.000 krónur |
2 | ENLESU4HZ | 50.000 krónur |
3 | AFVMN7RUB | Vikudvöl í orlofsíbúðum félaganna utan jóla- og áramótatímabils á árinu 2014 |
4 | AF832T7PM | Vikudvöl í orlofsíbúðum félaganna utan jóla- og áramótatímabils á árinu 2014 |
5 | ENFXEH683 | Vikudvöl í orlofsíbúðum félaganna utan jóla- og áramótatímabils á árinu 2014 |
6 | AF4Y5R9GK | Vikudvöl í orlofsíbúðum félaganna utan jóla- og áramótatímabils á árinu 2014 |
Þökkum öllum sem þátt tóku.
Ályktun formannafundar ASÍ um kjaramál
Reykjavík 30.október 2013
Kjarasamningar á almennum vinnumarkaði eru lausir 1. desember n.k. Öll heildarsamtök samningsaðila á almennum og opinberum vinnumarkaði hafa undanfarin misseri metið ávinninginn af því ef efnahagsleg umgjörð kjarasamninga hér á landi væri svipuð og á hinum Norðurlöndunum, þar sem traust efnahagsstjórn tryggir stöðugt gengi og lága verðbólgu. Ljóst er að við þær aðstæður er vel gerlegt að auka kaupmátt launa í öruggum skrefum án þess að raska samkeppnisstöðu eða auka atvinnuleysis. Fundur formanna aðildarfélaga ASÍ telur að inn í slíkt umhverfi ættum við að stefna.
Flestar skrifstofur AFLs lokaðar
Skrifstofur AFLs Starfsgreinafélags, nema á Höfn og á Norðfirði, verða lokaðar fimmtudaginn 24. okt til mánudags 28. okt. vegna starfsmannaferðar. Skrifstofur félagsins opna á venjulegum tíma þriðjudaginn 29. október. Veitt verður lágmarksþjónusta á meðan lokunni stendur og tveir starfsmanna félagsins munu reyna að annast símsvörun. Skrifstofur félagsins á Höfn og Norðfirði verða opnar eins og venjulega.
Félagið minnir á að félagsmenn geta sjálfir leigt orlofsíbúðir á vefnum www.orlof.asa.is
Úthlutun íbúða yfir jól og áramót
Formannafundur ASÍ
Kjarasamningarnir framundan verða helsta umfjöllunarefnið á formannafundi ASÍ sem fram fer í Rafiðnaðarskólanum á Stórhöfða á miðvikudaginn. Auk þess sem staðan í væntanlegum kjaraviðræðum verður vegin og metin verður fjallað um velferðakerfið á vinnumarkaði sem ASÍ hefur alla tíð lagt mikla áherslu á. Seturétt á fundinum hafa formenn allra aðildarfélaga ASÍ, formenn deilda innan aðildarfélaga og miðstjórnarmenn.
Fleiri greinar...
- Íbúðir yfir jóla og áramót
- Kostnaður við notkun debetkorta.
- Alþjóðleg aðgerðavika hjá ALCOA
- Alþjóðleg aðgerðavika hjá ALCOA
- Starfsmenn grunnskóla og leikskóla funda
- Grunnskólastarfsmenn í AFLi!
- Almennur félagsfundur í verkamannadeild.
- Námskeið á næstunni - Hornafirði - Starfslok - að hverju þarf að huga?
- 3ja launaflokka hækkun hjá HSA
- Verktakinn segir sig frá verkinu