Ályktun formannafundar ASÍ um kjaramál
Reykjavík 30.október 2013
Kjarasamningar á almennum vinnumarkaði eru lausir 1. desember n.k. Öll heildarsamtök samningsaðila á almennum og opinberum vinnumarkaði hafa undanfarin misseri metið ávinninginn af því ef efnahagsleg umgjörð kjarasamninga hér á landi væri svipuð og á hinum Norðurlöndunum, þar sem traust efnahagsstjórn tryggir stöðugt gengi og lága verðbólgu. Ljóst er að við þær aðstæður er vel gerlegt að auka kaupmátt launa í öruggum skrefum án þess að raska samkeppnisstöðu eða auka atvinnuleysis. Fundur formanna aðildarfélaga ASÍ telur að inn í slíkt umhverfi ættum við að stefna.
Flestar skrifstofur AFLs lokaðar
Skrifstofur AFLs Starfsgreinafélags, nema á Höfn og á Norðfirði, verða lokaðar fimmtudaginn 24. okt til mánudags 28. okt. vegna starfsmannaferðar. Skrifstofur félagsins opna á venjulegum tíma þriðjudaginn 29. október. Veitt verður lágmarksþjónusta á meðan lokunni stendur og tveir starfsmanna félagsins munu reyna að annast símsvörun. Skrifstofur félagsins á Höfn og Norðfirði verða opnar eins og venjulega.
Félagið minnir á að félagsmenn geta sjálfir leigt orlofsíbúðir á vefnum www.orlof.asa.is
Kostnaður við notkun debetkorta.
Á heimasíðu Alþýðusambandsins er að finna athyglisverðar upplýsingar um kostnað við notkun debertkorta.
Sjá nánar ASÍ frétt
Formannafundur ASÍ
Kjarasamningarnir framundan verða helsta umfjöllunarefnið á formannafundi ASÍ sem fram fer í Rafiðnaðarskólanum á Stórhöfða á miðvikudaginn. Auk þess sem staðan í væntanlegum kjaraviðræðum verður vegin og metin verður fjallað um velferðakerfið á vinnumarkaði sem ASÍ hefur alla tíð lagt mikla áherslu á. Seturétt á fundinum hafa formenn allra aðildarfélaga ASÍ, formenn deilda innan aðildarfélaga og miðstjórnarmenn.
Íbúðir yfir jóla og áramót
Umsóknir um íbúðir fyrir jóla og áramótatímabilið þurfa að hafa borist til okkar fyrir 31.október n.k. Úthlutun fer fram 4. nóvember. Öllum umsóknum verður svarað og stefnt er að því að svör hafi borist umsækjendum fyrir miðjan nóvember.
umsóknareyðublað.
Fleiri greinar...
- Alþjóðleg aðgerðavika hjá ALCOA
- Alþjóðleg aðgerðavika hjá ALCOA
- Starfsmenn grunnskóla og leikskóla funda
- Grunnskólastarfsmenn í AFLi!
- Almennur félagsfundur í verkamannadeild.
- Námskeið á næstunni - Hornafirði - Starfslok - að hverju þarf að huga?
- 3ja launaflokka hækkun hjá HSA
- Verktakinn segir sig frá verkinu
- Félagsleg undirboð í opinberum framkvæmdum
- Breyting á fæðispeningum sjómanna.