Um þessar mundir er verið að greiða út desemberuppbót, á almennum markaði skal greiða desemberuppbót eigi síðar en 15. desember. Upphæðir sem starfsmenn fá greidda er misjöfn milli kjarasamninga. Fólk á almennum markaði, iðnaðarmenn/iðnnemar og starfsmenn bændabýla/línu fá 52.100 kr. Verslunar og skrifstofufólk 59.200, sveitafélögin greiða 80.700 kr. en Álverið greiðir hæðst eða 213.000 kr. sjá nánar hér.
Afl Starfsgreinafélag hefur gert samkomulag við Flugfélagið Erni um ódýr flugfargjöld fyrir félagsmenn milli Hornafjarðar og Reykjavíkur. Verð fyrir aðra leið er 8.000 krónur og er nafn félagsmanns ritað á miðann við kaup á honum. Miðarnir verða seldir á skrifstofum AFLs á Hornafirði og Djúpavogi frá og með 25. nóvember n.k.
Viðræður vegna kjarasamninga hafa nú ratað inn í auglýsingatíma sjónvarpsins með auglýsingu sem SA birti í gærkveldi. Þar er varað við hækkun launa umfram 2%. Flestir leggjast nú á eitt að koma í veg fyrir að launafólk fái launahækkanir í kjarasamningum sem eru lausir í lok mánaðarins en það er fáheyrt að samtök atvinnurekenda fari frekar í auglýsingaherferðir en að tala við samningsaðila við samningaborðið. Starfsgreinasamband Íslands lagði fram kröfur sínar um síðustu mánaðarmót og þeim var hafnað samstundis. Ítrekaðar tilraunir hafa verið gerðar til að setjast við samningaborðið með Samtökum atvinnulífsins en fátt hefur verið um svör.
Skv. auglýsingu sem Samtök Atvinnulífsins sýndi í gærkvöldi er verðbólga launafólki að kenna og þeirri ósvífni launafólks að krefjast hærri launa. Samninganefnd Starfsgreinasambands Íslands er ekki á sama máli og sá ekki ástæðu til að mæta á boðaðn samningafund í morgun. Þess í stað var stóra samninganefnd SGS boðuð til fundar í dag og ályktunin sem birtist hér neðan á síðunni samþykkt. Ennfremur var samþykkt að leita samráðs við önnur landssambönd vegna komandi kjarasamninga.
Í síðustu viku sendi AFL Starfsgreinafélag sveitarfélögum á félagssvæðinu fyrirspurn um fyrirhugaðar gjaldskrárhækkanir. Svör hafa borist frá tveimur sveitarfélögum - í öðru þeirra var ekki búið að taka neinar ákvarðanir um hækkanir 2014 en í hinu svarinu kom fram að fyrirhugað væri að hækka helstu þjónustugjöld um 3,5%.