Samninganefnd AFLs ákvað á fundi sínum í gærkvöld að það færi fram allsherjaratkvæðagreiðsla um nýgerða kjarasamnigna með póstatkvæðagreiðslu. Atkvæðaseðlar verða settir í póst á morgun eða mánudag en atkvæði verða talin 10. mars nk.
Formaður AFLs og framkvæmdastjóri halda kynningarfund í kaffistofu HB Granda á morgun og almennan félagsfund kl. 1800 í húsnæði félagsins að Lónabraut 4.
Laugardaginn 16. febrúar stóð AFL Starfsgreinafélag fyrir ráðstefnunni „Hjallastefna fyrir fullorðna“ á Hótel Héraði á Egilsstöðum en ráðstefnan var fyrir konur í félaginu. Þátttakan var mjög góð en um 90 konur víðs vegar að af Austurlandi sóttu hana. Margir góðir gestir héldu áhugaverð erindi og í lok ráðstefnunnar var hópavinna. AFL bauð upp á kvöldverð og það voru glaðar og ánægðar konur sem héldu heim síðar um kvöldið.
Samninganefnd Starfsgreinasambandsins situr í húsnæði sáttasemjara með pennann á lofti. Fulltrúar ASÍ eru á fundi með fulltrúum ríkisstjórnarinnar til að ganga frá framlagi ríkisvaldsins vegna nýrra kjarasamninga. Enn hefur ekki verið gengið frá sérákvæðum Alþýðusambands Austurlands / AFLs Starfsgreinafélags en fulltrúar AFLs í samninganefndinni munu ekki skrifa undir samning fyrr en gengið hefur verið frá þessum atriðum
Kynningarfundir um nýgerðan kjarasamning meðal almennra félagsmanna hefjast á morgun föstudag en í gærkvöld samþykkti samninganefnd félagsins að mæla með því við félagsmenn að þeir samþykki samninginn.
Vinnustaðir og hópar sem óska eftir kynningu fyrir utan meðfylgjandi fundarplan geta haft samband við næstu skrifstofu félagsins. Ennfremur verður opnuð ný undirsíða á heimasíðu félagsins á morgun þar sem settar verða inn allar upplýsingar um nýgerða samninga og kynningarefni sett fram og fréttir af kynningum.
Hækkun launa þeirra
tekjulægstu, kaupmáttaraukning og efnahagslegur stöðugleiki var
meginmarkmið Starfgreinasambandsins í kjaraviðræðum við Samtök
atvinnulífsins. Þetta markmið hefur að mestu náð fram í þeim
kjarasamningi sem undirritaður var í kvöld.