AFL Starfsgreinafélag hefur tekið í notkun orlofskerfi þar sem félagsmenn geta skoðað laus tímabil og bókað sjálf á netinu og gengið frá greiðslu. Slóðin er http://orlof.asa.is. Ef símanúmerið þitt eða netfang er ekki þekkt í félagakerfinu - þarftu að hafa samband við skrifstofur félagsins og láta skrá þessar upplýsingar. Annars dugar kennitalan til að byrja að bóka.
Uppfært 24. júlí 2013 Blönduós 23.08.2013 til 30.08.2013
Einarsstaðir 02.08.2013 til 09.08.2013 Einarsstaðir 09.08.2013 til 16.08.2013 Einarsstaðir 16.08.2013 til 23.08.2013 Einarsstaðir 23.08.2013 til 30.08.2013 og áfrma, vetrarleiga
Illlugastaðir 23.08.2013 til 30.08.2013 og áfram, vetrarleiga
STARF - vinnumiðlun og ráðgjöf býður atvinnurekendum á Austurlandi til kynningarfundar um atvinnumál á svæðinu, þjónustu félagsins og þeim möguleikum sem standa atvinnurekendum til boða við ráðningar á atvinnuleitendum. Fundirnir vera tveir. Sá fyrri verður haldinn 10. maí í húsnæði Austurbrúar, Búðareyri 1, Reyðarfirði og sá seinni á Hótel Héraði á Egilsstöðum 31. maí. Báðir fundirnir eru kl. 12.00 - 14.00, léttar hádegisveitingar verða í boði.
Um þessar mundir er verið að senda límmiða fyrir árið 2013 til allra félagsmanna, límmiðann skal líma yfir ártalið 2012, og telst það endurnýjun kortsins. Minnum á að kortið er lykill að íbúðum félagisns í Reykjavík, þar sem leigt tímabil er opnað á kort leigjandans. Ef félagsmaður vill láta opna kort á annan aðila verður viðkomandi leigjandi að hafa samband við félagið og láta virkja kort í eigu annars félagsmanns eða fá kort að láni gegn 2000 kr. skilagjaldi.
Boðað er til aðalfundar AFLs Starfsgreinafélags 2013 laugardaginn 11. maí klukkan 15:00 á Hótel Hallormsstað Dagskrá: 1) Skýrsla stjórnar fyrir liðið starfsár
2) Reikningar félagsins bornir upp til samþykktar
3) Kjör stjórnar, varastjórnar og trúnaðarráðs
4) Kjör félagslegra skoðunarmanna
5) Kjör til annarra stjórna og ráða félagsins sbr. lög þess
6) Breyting á reglugerð sjúkrasjóðs
7) Ákvörðun félagsgjalds
8) Kosning fulltrúa á ársfund Stapa.
9) Önnur mál
Ferðir verða skipulagðar af skrifstofum félagsins – hafið samband við næstu skrifstofu.
Ársreikningar félagsins liggja fyrir á skrifstofum félagsins
AFL Starfsgrein afélag