Aðalfundur verslunarmannadeildar AFLs Starfsgreinafélags verður haldinn í húsnæði félagsins að Víkurbraut 4 Hornafirði fimmtudaginn 14. apríl 2016 kl 20:00.
Aðalfundur verkamannadeildar AFLs Starfsgreinafélags verður haldinn í húsnæði félagsins að Búðareyri 1 Reyðarfirði þriðjudaginn 12. apríl 2016 kl .17:00
Fundarefni: 1. Skýrsla formanns um liðið starfsár 2. Kjaramál 3. Kosning stjórnar. 4. Önnur mál.
Í tengslum við átakið „Einn réttur – ekkert svindl!“ hefur ASÍ lagt áherslu á vekja athygli á undirboðum sem felast í ólaunaðri vinnu. Ítarlega rökstutt álit ASÍ (sjá í frétt á www.asi.is) og helstu sjónarmið í hnotskurn (sjá í frétt á www.asi.is) hafa legið fyrir í nokkurn tíma og vakið mikla eftirtekt enda vandamálið vaxandi sérstaklega í ákveðnum þjónustugreinum. Afstaða ASÍ er einföld og skýr:
Ólaunuð vinna við efnahagslega starfsemi, framleiðslu og sölu á vöru eða þjónustu á markaði (í hagnaðarskyni) oft í samkeppni við fyrirtæki í sömu atvinnustarfsemi, felur í sér óásættanleg undirboð á íslenskum vinnumarkaði og stenst hvorki kjarasamninga né lög.
Alþýðusambands Íslands (ASÍ) 12. mars 2016 framkvæmdu Lúðrasveit verkalýðsins, kvennakórarnir Hrynjandi og Katla auk meðlima í Karlakór Reykjavíkur magnaðan gjörning (Flash mob) og göngum Hörpunnar í Reykjavík. Alls tóku 160 manns þátt. Lagið sem þau fluttu var Maístjarnan eftir Jón Ásgeirsson við texta Halldórs Laxness. sjá hér
Í pistli í Austurglugganum í þessari viku er fjallað um kynferðislegt áreiti er ungar stúlkur þurfa að þola. Í pistlinum er vísað til fiskvinnslu sem ekki er nafngreind. Skv. pistlahöfundi, Þórunni Ólafsdóttir, virðist ástandið lítið hafa batnað á fimmtán árum - eða frá því hún sjálf starfaði við fiskvinnslu og þar til sl. sumar er unglingsstúlka sem hún vitnar til, starfaði í sama húsi. Kynferðislegt áreiti er m.a. athugasemdir um vaxtarlag, um einkalíf og hvers kyns niðurlægjandi athugasemdir og atferli.