In Iceland, volunteer work is only acceptable in case of charities and cultural or humanitarian activities – not in economically active companies including farming. It is a violation of Icelandic law and workers right to let volunteers replace employees in a regular job. read more
AFL Starfsgreinafélag hefur hækkað leiguverð á orlofsíbúðum félagsins. Jafnframt er verðbil milli íbúða af ólíkum stærðum aukið verulega. Er þetta gert eftir mikla umfjöllun innan stjórnar félagsins og stjórnar Orlofssjóðs.
Tilgangur hækkunarinnar er m.a. að mæta hækkandi rekstrarkostnaði íbúðanna samfara aukinni þjónustu sem veitt er og auknum umsvifum en alls rekur félagið nú 21 íbúð í Reykjavík og fjórar á Akureyri. Fjárfesting í þessum íbúðum hefur tekið allt laust fé Orlofssjóðs og vegna annarra aðkallandi verkefna – s.s. endurnýjun orlofshúsa er nauðsynlegt að leigutekjur af íbúðunum standi alfarið undir sér.
Hækkunin greinist í tvo þætti – þ.e. hækkun á upphafsgjaldi svo og hækkun á gjaldi fyrir hvern sólarhring. Upphafsgjaldið hækkar um 15 – 35% en þetta gjald er ætlað til að mæta kostnaði við þrif og þvott á rúmfatnaði. Ljóst er að sérstaklega varðandi stærri íbúðir þar sem margir gista hefur þetta gjald engan veginn staðið undir kostnaði. Hækkun á sólarhringsverði er frá 0% og upp í 20%.
Með þessu hækkar meðalleiga félagsmanns – þ.e. meðalleiga allra íbúða er 3,5 sólarhringar – um 4% v. minnstu íbúðanna, 14% v. þriggja herbergja íbúða og 24% vegna 4ra herbergja íbúða. Vikuleiga eftir breytingar verður kr. 28.145 fyrir 2ja herbergja íbúðir, kr. 31.671 fyrir þriggja herbergja íbúðir og kr. 35.251 fyrir 4ra herbergja íbúðir.
Það eru aðallega tvær ástæður fyrir því að verðbil milli íbúða eftir stærð er aukið. Í fyrsta lagi eru að jafnaði fleiri sem gista í stærri íbúðunum og því kostnaður við þvott rúmfata verulega hærri auk þess sem dýrara er að ræsta þær. Í öðru lagi hafa m.a. félagsmenn bent okkur á að vegna þess hversu litlu munaði á verði – hafi fólk tekið stærri íbúðir en kannski var full þörf á og því hefur stundum skort stærri íbúðir fyrir stærri fjölskyldur.
Þetta er í fyrsta sinn síðan 2000 sem félagið hefur hækkað leiguverð íbúða umfram verðlagsþróun þrátt fyrir að verulega hafi verið bætt við þjónustu og t.d. íbúðir nú þrifnar milli leigutaka, þ.e. skúrað yfir gólf m.a. Eftir sem áður eiga leigutakar að taka af rúmum og þrífa af borðum ofl. - sjá leiðbeiningar í leigusamning.
Þessu til viðbótar hækkar staðfestingargjald úr kr. 500 í kr. 1.000 - það er hluti leiguverðs og því ekki eiginleg hækkun. Félagsmönnum er hins vegar bent á að staðfestingargjaldið er óendurkræft - þ.e. þó viðkomandi hætti við leigu - er það ekki endurgreitt.
Leigur sem þegar hafa verið bókaðar á næsta ári - verða á því leiguverði sem var í gildi við bókun.
Aðalfundur sjómannadeildr AFLs Starfsgreinafélags verður haldinn föstudaginn 29. desember 2017 kl. 14:00 í húsnæði félagsins að Búðareyri 1 Reyðarfirði
Dagskrá
Skýrsla stjórnar fyrir liðið starfsár
Breyting á reglugerð deildarinnar
Kjaramál
Kosning stjórnar
Önnur mál
Ferðir verða samræmdar á næstu skrifstofu félagsins. AFL Starfsgreinafélag Sjómannadeild
I könnun sem AFL Starfsgreinafélag og Eining Iðja fær Gallup til að gera um ýmis atriði sem snerta kjör og aðstæður félagsmanna sinna, er einnig happadrætti, því allir sem tóku þátt gátu unnið veglega vinninga. Í bréfinu sem þátttakendur fengu var lukkunúmer. Búið er að draga og voru nöfn eftirfarandi félagsmanna dregin út.
1. vinningur, kr. 100.000, Sólveig Helga Hjarðar (AFL)
2. vinningur, kr. 50.000, Kolbrún Gunnarsdóttir (Eining-Iðja)
3. – 6. vinningur, vikudvöl í orlofsíbúðum félaganna, Hrund E. Thorlacius (Eining-Iðja), Silja Björk Blöndal (Eining-Iðja), Grétar Ægisson (AFL) og Jón Kristinn Henriksen (AFL)
Í ár lentu einnig 10 þátttakendur strax í happdrættispotti, voru í raun dregnir út áður en þeir svöruðu. Hinir heppnu vinningshafar fengu tilkynningu um það um leið og þeir höfðu lokið við að svara könnuninni, um er að ræða kr. 10.000 inneign á debetkorti sem þeir nálguðust á skrifstofu félagsins á Akureyri. Aðeins fimm þeirra sem dregin voru út svöruðu sem þýðir því miður að fimm félagsmenn misstu af því að fá vinning upp á kr. 10.000. Það getur borgað sig að taka þátt!
Greiða á desemberuppbót ýmist með nóvemberlaunum eða í síðasta lagi fyrir 15. desember. Upphæðir desemberuppbótar miðast við að starfsmenn hafi unnið 45 vikur í fullu starfi eða eru í starfi fyrstu viku í desember. Yfirleitt þarf starfstími hjá sama launagreiðanda að vera 12 vikur eða meira til að réttur til desemberuppbótar myndist.
Starfsmenn í hlutastörfum fá greitt hlutfallslega uppbót og eins þeir sem unnið hafa hluta úr ári. Það geta verið aðeins mismunandi ákvæði í kjarasamningum og er fólki bent á að kynna sér sinn samning.
Vert er að vekja athygli námsmanna og annarra er störfuðu yfir sumarmánuðina á því að hafi starfstíminn verið 12 vikur eða meira á viðkomandi rétt á hlutfallslegri desemberuppbót.
AFL Starfsgreinafélag, Grunnskólinn á Seyðisfirði og Listasafn Alþýðu hafa tekið höndum saman og skipulagt vinnustofu fyrir börn á Seyðisfirði dagana 12. og 13. desember.
2017 er afmælisár AFLs og var það hvatinn að því að vinnustofan er skipulögð á Austfjörðum að þessu sinni, en námskeiðið er hluti af stærra verkefni þar sem Listasafnið skipuleggur vinnustofur í hreyfimyndagerð í skólum á ýmsum stöðum víðsvegar um landið. AFL Starfsgreinafélag var stofnað 28. apríl 2007 með sameiningu þriggja félaga, AFLs Starfsgreinafélags Austurlands, Verkalýðsfélags Reyðarfjarðar og Vökuls Stéttarfélags. Öll félögin sem sameinuðust í AFLi eiga sér langa sögu.
Verkefnið felst í því að farið er með málverk úr stofneign Listasafns ASÍ inn í skólastofu þar sem nemendur fá að skoða verkið og fræðast um tilurð þess og höfund. Börnin vinna síðan hreyfimyndir sem innblásnar eru af viðkomandi verki. Þannig gefst þeim tækifæri til túlka verkið og gefa því nýtt líf. Þau rýna ofan í það sem helst vekur áhuga þeirra í verkinu; liti, birtu, form, stíl, bakgrunn eða það umhverfi sem verkið sjálft spratt úr á sínum tíma. Nemendur vinna í litlum hópum með aðstoð kennara sinna, búa til söguþráð, vinna klippimyndir úr pappír, mynda þær með spjaldtölvum, klippa þær til í klippiforriti og hljóðsetja. Þannig kynnast nemendur vel verkinu sjálfu í samhengi viðlistasöguna, læra um myndbyggingu, sjónarhorn og litanotkun, sögugerð og handritaskrif (storyboard), tæknivinnslu, hljóðvinnslu og kynnast jafnframt kvikmyndaferlinu frá upphafi til enda. Að þessu sinni verður unnið með málverkið ,,Sjómennirnir‘‘ eftir Gunnlaug Scheving en hann bjó á Seyðisfirði um tíma á sínum yngri árum.
Kennarar á námskeiðinu eru Ragnheiður Gestsdóttir myndlistar- og kvikmyndagerðarkona og Sigrún Jónsdóttir básúnuleikar og tónskáld. Einnig verður Kolbrún Vaka Helgadóttir með í för en hún mun vinna stuttmynd um vinnustofuna sem verður gerð aðgengileg á heimasíðu Listasafnsins ásamt fleiri stuttmyndum frá öðrum stöðum.
Frekari upplýsingar veitir Elísabet Gunnarsdóttir forstöðumaður Listasafns Alþýðu Sími: 868 1845 – Netfang: This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
Listasafn ASÍ var stofnað árið 1961. Safnið er eign Alþýðusambands Íslands og starfar samkvæmt reglugerð samþykktri af miðstjórn þess. Iðnrekandinn og bókaútgefandinn Ragnar Jónsson í Smára lagði grundvöllinn að
listasafninu með því að gefa ASÍ málverkasafn sitt – um 120 myndir – eftir marga af þekktustumyndlistarmönnum þjóðarinnar. Ósk Ragnars var sú að stofnað yrði listasafn sem kæmi listinni á framfæri við
vinnandi fólk í landinu. Listasafn ASÍ hefur alla tíð starfað með þetta að leiðarljósi og hefur m.a. sérhæft sig í myndlistarsýningum sem settar eru upp á vinnustöðum og í stofnunum víða um land. Safnið hefur vaxið jafnt og þétt frá stofnun þess fyrir tæpum sextíu árum og geymir nú um 4000 verk.