AFL starfsgreinafélag

Til góðra verka

 

AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag

Aðalfundur sjómannadeildar AFLs

Stepen, Grétar og GuðjónAðalfundur sjómannadeildar AFLs Starfsgreinafélags var haldinn s.l.  mánudag á Reyðarfirði. Á fundinum voru nýgerðir kjarasamningar sjómanna kynntir, helstu ályktanir þings Sjómannasambandsins ræddar, ásamt hefðbundnum aðalfundarstöfum. Á fundinn mættu 20 sjómenn víðsvegar að af félagssæðinu

Lesa meira

Aðalfundur sjómannadeildar AFLs

Þórir HöfnAðalfundur sjómannadeildar AFLs Starfsgreinafélags verður haldinn mánudaginn 29. des. í Safnaðarheimilinu Reyðarfirði kl 17:00. Brottför frá Víkurbraut 4 Höfn kl. 13:30. Dagskrá: 1.  Skýrsla stjórnar    2.  Kjaramál- nýgerðir samningar. 3.  Þing Sjómannasambands Íslands, 4.  Kosning stjórnar, 5.  Önnur mál.

Samningar sjómanna.

HornafjarðarhöfnÁ  miðvikudag var skrifað undir nýjan kjarasamninga fyrir sjómenn en þeir höfðu þá verið samningslausir frá 1. júní s.l. Atkvæðaseðlar til félgsmanna voru póstaðir í dag og þurfa þeir að berast til baka fyrir 5 janúar n.k. Samningarnir verða kynntir á aðalfundi sjómannadeildarinnar sem haldinn verður þann 29. desember. Lesa meiralaunataxti.

Atkvæðagreiðsla um kjarasamning AFLs við Launanefnd sveitarfélaga.

kosningÍ dag voru talin atkvæði úr atkvæðagreiðslu félagsmanna sem starfa hjá sveitarfélögum um kjarasamning félagsins sem skrifað var undir 11.  desember s.l milli AFLs og Launanefndar sveitafélaga.

Á kjörskrá voru 428. Atkvæði greiddu 214 eða 50%. Já sögðu 198 eða 92,52%. Nei sögðu 15 eða 7,01%. Ógildur 1 eða 0,47%.

Kynning á kjarasamningi

Kynning á kjarasamningi milli Launanefndar Sveitarfélaga og AFLs Starfsgreinafélags, var haldin á Vopnafirði 18.12.´08. Mjög góð mæting var á fundinn, alls mættu 20 manns og hlýddu á Sigríði Dóru Sverrisdóttur trúnaðarmann í leikskóla og fulltrúa í samninganefnd, fara yfir og útskýra samningsdrögin af miklum myndugleik.

Lesa meira

einn rettur logo 002            VIRK starfsendurhæfingasjóður     vertuaverdi