Fulltrúar AFLs Stephen Johnson, Björgvin Erlendsson og Sverrir M. Albertsson á formannafundi sjómannasambandsins sem haldinn var 26 og 27 okt.
Björgvin var kjörinn formaður Sjómannadeildar AFLs á stofnfundi félagsins í apríl sl. Stephen var formaður Sjómannadeildar Vökuls fyrir sameiningu félaganna og Sverrir er starfsmaður AFLs. Stofnfundur Sjómannadeildarinnar er fyrirhugaður næstu vikurnar.
Formennn og framkvæmdastjórn SGS fundaði í gær vegna undirbúnings komandi kjarasamninga. Að loknum fundi framkæmdastjórnar komu formenn landsbyggðafélaga SGS saman til skrafs og ráðagerða.
Framkvæmdastjórn SGS og formenn aðildarfélaga sambandsins, annarra en flóafélaganna komu saman til fundar í dag og gengu frá meginmarkmiðum samninganefndar SGS, þ.e. landsbyggðarfélaganna, vegna komandi kjaraviðræðna við Samtök atvinnulífsins.
Félagsmenn fengu nú í vikunni sent yfirlit yfir greiðslur til lífeyrissjóðsins Stapa.
Mikilvægt er að borin séu saman afregin iðgjöld á launaseðlum við þær greiðslur sem skilað er til sjóðsins. Iðgjöld til lífeyrissjóðs eru 12% af launum og geri launamaður ekki athugasemd til sjóðsins innan tilskilins frest á hann á hættu að glata þeim réttingum sem greiðslurnar ávinna.
Hólmatindur, ísfisktogari Eskju á Eskifirði, hefur verið seldur og verður afhentur nýjum eigendum í Rússlandi í lok mánaðarins. Sölu skipsins bar brátt að en Hólmatindur hefur verið á söluskrá um nokkra hríð.