Orlofshús AFLs um páska!
Að venju þá verður páskatímabili í orlofshúsum félagsins úthlutað. Umsóknarfrestur er til 10. mars og fer úthlutun fram 16. mars. Umsóknareyðublað
Að venju þá verður páskatímabili í orlofshúsum félagsins úthlutað. Umsóknarfrestur er til 10. mars og fer úthlutun fram 16. mars. Umsóknareyðublað
Mikil óvissa ríkir um framhald viðræðna um kjarasamning sjómanna eftir að slitnaði upp úr í viðræðum Sjómannasambandsins og útgerðarmanna í dag. Að sögn fulltrúa AFLs í samninganefnd sjómanna hefur enginn árangur náðst í stóru málunum þrátt fyrir talsverð fundarhöld sl. 14 daga. Formanður og varaformaður Sjómannadeildar AFLs héldu félagsfundi víða á félagssvæðinu í síðustu viku og heyrðu hljóðið í sjómönnum. Mikill einhugur var í félagsmönnum og þá sérstaklega varðandi olíuverðsviðmið en ein af kröfum SSÍ er að hlutur aflaverðmætis til skipta fari úr 70% í 73% Góð mæting var á fundina sem voru haldnir á Höfn, Reyðarfirði, Norðfirði og Seyðisfirði og mættu ca 50% félagsmanna deildarinnar á fundina.
Að sögn einstakra fundarmanna er mikill sóknarhugur í sjómönnum og þótti mönnum ótímabært að fara að ræða eftirgjöf af kröfugerð - verkfallið væri búið að standa í mánuð og það munaði ekkert um mánuð í viðbót.
AFL Starfsgreinafélag varð til 28. apríl 2007 með samruna þriggja félaga, Vökuls Stéttarfélags, Verkalýðsfélags Reyðararðar og AFLs Starfsgreinafélags Austurlands. Bæði Vökull og AFL Starfsgreinafélag Austurlands höfðu áður orðið til úr sameiningum minni félaga. Verkalýðs- barátta á Austurlandi á sér hins vegar sögu allt aftur til 1896 er fyrsta verkalýðsfélagið var stofnað á Seyðisfirði. Félagssvæði AFLs nær allt frá Skeiðará í suðri að Þórshöfn í norðri. Stærð félagsins fylgja kostir og ókostir. Félagið hefur reynt með ýmsu móti að vinna gegn ókostunum með öflugu starfi trúnaðarmanna, rekstri þjónustuskrifstofa á sjö stöðum á félagssvæðinu og með vinnustaðaheimsóknum. Styrkleika sína hefur félagið reynt að virkja félagsmönnum til hagsbóta. Við munum fagna 10 ára afmæli AFLs með margvís- legum hætti. Meðal annars verður mikið lagt í ársfund trúnaðarmanna sem haldinn verður í mars og aðalfundur félagsins verður með sérstakri afmælisdag- skrá. Þá ætlum við að auka samtal okkar við ungt fólk á félagssvæðinu með ýmsum hætti. Við viljum líta til framtíðar því þangað stefnum við.
Starfsgreinasamband Íslands (SGS) krefst þess að fiskvinnslufyrirtæki tryggi afkomu starfsfólks sem af einhverjum ástæðum á lítinn eða engan rétt á atvinnuleysisbótum. Samkvæmt áliti Vinnumálastofnunar er því ekkert til fyrirstöðu að þau fyrirtæki sem beitt hafa grein um „ófyrirséð áföll“ í kjarasamningum og vísað fólki á atvinnuleysisbætur geti einnig nýtt kauptryggingarákvæði fyrir starfsfólk sem fær litlar eða engar atvinnuleysisbætur. Þannig má tryggja afkomu alls starfsfólks í landvinnslu. Jafnframt mun Starfsgreinasamband Íslands beita sér fyrir því að þau ákvæði sem fiskvinnslufyrirtæki hafa beitt til að komast hjá launagreiðslum í verkfalli sjómanna verði endurskoðuð.
Miðstjórn Alþýðusambands Íslands lýsir yfir fullum stuðningi við verkföll og kjarabaráttu sjómanna og vélstjóra við samtök fyrirtækja í sjávarútvegi. Útgerðarmenn hafa árum saman neitað að ganga til kjarasamninga við sjómenn og vélstjóra og sett fram óbilgjarnar kröfur um að launafólk greiði verulegan hluta af eðlilegri greiðslu fyrirtækjanna fyrir afnot af sameiginlegri auðlind þjóðarinnar.
Miðstjórn ASÍ skorar á samtök atvinnurekenda að ganga nú þegar til kjarasamninga við sjómenn og vélstjóra. Miðstjórnin fordæmir jafnframt þau verkfallsbrot sem framin hafa verið og skorar á útgerðarmenn að virða löglega boðaðar aðgerðir sjómanna.
Orlofsferð EiningarIðju og Afls Starfsgreinafélags sumarið 2017
Þýskaland-Luxemburg-Trier-Mósel-Rín
Farið verður til Þýskalands 3. til 10. júní 2017, ef næg þátttaka fæst.
Flogið frá Keflavík til Frankfurt og þaðan aftur til Keflavíkur.
Farið verður til Cochem, Lúxemborgar, Bernkastel-Kues, Trier, Rüdesheim, Koblenz.
Gist verður 5 nætur í nágrenni Bernkastel-Kues www.moselpark.de og 2 nætur í Rüdesheimwww.parkhotel-ruedesheim.de. Gist verður í tveggja manna herbergjum á hótelum.
Leiðsögumaður verður Harpa Hallgrímsdóttir, bílstjóri Sveinn Sigurbjarnarson og fararstjórar Björn Snæbjörnsson og fulltrúi frá Afli.
Verð kr. 225.000 á mann.
Óafturkræft staðfestingargjald er kr. 40.000.
Innifalið í verði:
- Akstur: Allur akstur erlendis. Flug: Keflavík – Frankfurt – Keflavík.
- Gisting: 7 nætur í tveggja manna herbergjum á hótelum með morgunverði.
- Sjö kvöldverðir innifaldir erlendis.
- Sigling á Rín, vínsmökkun hjá vínbónda.
Ekki innifalið í verði:
- Ferðir og gisting innanlands og aðgangseyrir í söfn og á áhugaverða staði þar sem greiða þarfaðgangseyri.
Ferðin er samstarfsverkefni Einingar-Iðju og AFLs Starfsgreinafélags.
Starfsgreinasamband Íslands boðar til ráðstefnu þann 12. janúar 2017 um lífsgæði og kjör starfsfólks í hlutastörfum og vaktavinnu. Sjónvarpað verður beint frá ráðstefnunni í gegnum facebook-síðu Starfsgreinasambandsins og eru félagar um allt land hvattir til að nýta sér tæknina.
Á ráðstefnunni verður sjónum beint að því hvort starfsfólk velur sér sjálft þessi störf og hvaða áhrif störf sem eru ekki með hefðbundinn vinnutíma hafa á lífsgæði fólks. Hvað getur starfsfólk gert til að draga úr streitu í vaktavinnu? Getur fólk valið að vinna fulla vinnu eða eru hlutastörf dulbúin kjaraskerðing? Hvernig eru kynjahlutföll meðal starfsfólks með óhefðbundinn vinnutíma? Hefur óhefðbundinn vinnutími áhrif á heilsu starfsfólks og þá hvernig? Þessum spurningum og fleiri verður velt upp á ráðstefnunni en dagskráin er blanda af reynslusögum starfsfólks, kynning á niðurstöðum nýlegra rannsókna og umfjöllun sérfræðinga um hvernig draga megi úr neikvæðum áhrifum óhefðbundins vinnutíma. Ráðstefnan fer fram á Hotel Natura og hefst hún klukkan 12:30 og stendur til 16:30. Nauðsynlegt er að skrá sig á ráðstefnuna ef mætt er á staðinn.
Dagskrá 12:30