Verum virk og tökum afstöðu
Ársfundur trúnaðarmanna AFLs Starfsgreinafélags 2011 var haldinn á Höfn í Hornafirði sl. föstudag og laugardag. Fundurinn tókst vel en hefur oftast verið betur sóttur en nú en alls voru um 40 trúnaðarmenn á fundinum.
Ársfundur trúnaðarmanna AFLs Starfsgreinafélags 2011 var haldinn á Höfn í Hornafirði sl. föstudag og laugardag. Fundurinn tókst vel en hefur oftast verið betur sóttur en nú en alls voru um 40 trúnaðarmenn á fundinum.
Í lok nóvember á þessu ári er áætlað að öll orlofshús verkalýðshreyfingarinnar á Einarsstöðum, hafi verið tengd við hitaveitu. Skrifað var undir samninga þessa efnis sl. miðvikudag. Framkvæmdir munu hefjast í maí og eru verklok áætluð í nóvember.
Skrifstofur AFLs Starfsgreinafélags eru lokaðar í dag vegna breytinga á síma-og tölvukerfum. Ef bráðnauðsynlegt er að ná sambandi við félagið er hægt að hringja í 4700 315 en í því númeri verður reynt að viðhafa lágmarks svörun. Ennfremur ef erindið tengist orlofsíbúðum er hægt að senda tölvupóst á Ten adres pocztowy jest chroniony przed spamowaniem. Aby go zobaczyć, konieczne jest włączenie w przeglądarce obsługi JavaScript., ef erindið er vegna samskipta við sjúkrasjóð félagsins, Ten adres pocztowy jest chroniony przed spamowaniem. Aby go zobaczyć, konieczne jest włączenie w przeglądarce obsługi JavaScript. eða vegna starfsmenntasjóða félagsins, á Ten adres pocztowy jest chroniony przed spamowaniem. Aby go zobaczyć, konieczne jest włączenie w przeglądarce obsługi JavaScript..
Varðandi önnur erindi er hægt að senda póst á Ten adres pocztowy jest chroniony przed spamowaniem. Aby go zobaczyć, konieczne jest włączenie w przeglądarce obsługi JavaScript.
Á síðustu stundu frestuðu tæknimenn EJS / Skýrr innleiðingu símakerfis fyrir AFL Starfsgreinafélag og verða skrifstofur félagsins því opnar á morgun eins og venjulega.
Við biðjumst forláts á þessum ruglingi en væntalega verður innleiðingin eftir 1 - 2 vikur og verður skrifstofum félagsins þá lokað eins og fyrirhugað var að gera á morgun.