AFL starfsgreinafélag

Til góðra verka

 

AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag

Myndasamkeppni

thumb_niconNú er myndasamkeppni AFLs um bestu myndina úr eða af sumar dvalarstað félagsins lokið. Félaginu bárust þó nokkrar myndir, þó var þátttaka dræmari en vonast var til,  þökkum við þeim sem sendu inn myndir fyrir farmlagið. Óháð matsnefnd mun velja bestu myndirnar  en sú nefnd hefur ekki haft tök á því að koma saman, verður það gert innan tíðar og í kjölfarið tilkynnt um sigurvegara. Hér má sjá innsendar myndir.

Fiskverð hækkað

thumb_fiskurÁ fundi Úrskurðarnefndar sjómanna og útvegsmanna var ákveðið að hækka verð á slægðum og óslægðum þorski, sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila, um 5%. Ákveðið var einnig að hækka verð á karfa um 10%. Verð þetta gildir frá og með deginum í dag.

Formaðurinn kemur sér upp "hjáleigu"

img_2962Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir, formaður AFLs, stóð í stórræðum á laugardag en þá kom hún sér upp húsi á jörðinni Fljótsbakka í Eiðaþinghá, en hún er öllu jafna búsett á Hornafirði. Á myndinni má sjá formanninn með fríðum flokki sem kom húsinu á staðinn og á undirstöðurnar. 

Lesa meira

Atvinnuöryggi og kjarasamningar

emf_logoSamtök málmiðnaðarmanna í Evrópu og víðar standa 7. október fyrir baráttudegi þar sem lögð verður áhersla á atvinnuöryggi - en einn fylgifiska efnahagskreppu um allan heim er aukin sókn fyrirtækja gegn atvinnuöryggi starfsmanna.

Lesa meira

Grunnskólastarfsmenn í AFLi!

thumb_starfsdagur_grunnskst_2008Starfsdagur grunnskólastarfsmanna verður haldinn föstudaginn 11. september n.k. í húsnæði félagsins að Búðareyri 1 Reyðarfirði.  

Lesa meira

einn rettur logo 002            VIRK starfsendurhæfingasjóður     vertuaverdi