Starfsdagur starfsmanna grunnskóla á Austurlandi sem eiga félagsaðild að AFLi Starfsgreinafélagi verður haldinn í 4. sinn 10. september nk. Þessi starfsdagur hefur verið mjög vel sóttur af félagsmönnum okkar og þótt takast vel til.
Sumarleyfum starfsmanna AFLs er að ljúka og eru skrifstofur félagsins að ná fullri virkni á nýjan leik. Nokkrir starfsmenn koma til baka úr sumarleyfi strax eftir helgi og þeir síðustu snúa til baka um mánaðarmótin.
Eins og fram hefur komið hér á síðunni fór starfsmannafélag AFLs í stutta ferð til Póllands og heimsótti þá m.a. útrýmingarbúðirnar í Birkenau við Auswitch.
Starfsfólk AFLs er á ferðalagi í Póllandi ásamt mökum sínum. Ferðin er farin undir styrkri stjórn Gosiu Libera, eins starfsmanna félagsins og hefur félag starfsmanna safnað í sjóð í rösk tvö ár til að standa straum af ferðinni.
Að gefnu tilefni tekur Alþýðusamband Íslands fram að verkfallsrétturinn er grundvallarréttur hvers stéttarfélags og óheimilt er lögum samkvæmt að brjóta eða komast hjá löglega boðuðum vinnustöðvunum.
StarfsendurhæfingAusturlands (StarfA) býður upp á náms- og atvinnutengda endurhæfingu þar sem unnið er að andlegri og líkamlegri endurhæfingu. Bæði er um einstaklingsmiðaða ráðgjöf að ræða og hópvinnu. Meðal starfsmanna StarfA er einnig ráðgjafi stéttarfélaganna sem annast ráðgjöf og milligöngu um atvinnutengda endurhæfingu sem studd er af VIRK - endurhæfingarsjóði atvinnulífsins.
Verulega hefur hægt á fjölgun örorkulífeyrisþega, þ.e. þeirra sem skráðir eru með 75% örorku eða meira, á þessu ári miðað við það síðasta. Fjöldi örorkulífeyrisþega var 15.842 þann 1. júlí síðastliðinn en hann var 15.677 í ársbyrjun þannig að fjölgunin á árinu nemur 165 einstaklingum á fyrri hluta ársins. Þetta er mikil breyting frá fyrri árum þar sem örorkulífeyrisþegum fjölgaði um 500-1.300 árlega á árabilinu 2004-2009. Þetta kemur fram á vef Samtaka atvinnulífsins.
Stjórn AFLs Starfsgreinafélags hvetur stjórnvöld til að grípa inn í uppgjör svokallaðra myntkörfulána. Sú óvissa er heimili og fyrirtæki búa við er óþolandi á meðan hvert dómsmálið á fætur öðru er höfðað vegna gengistrygginga lána.
Stjórn AFLs telur með öllu óásættanlegt að skuldarar þessara lána séu allir settir undir einn hatt. Ljóst er að á meðan almennt launafólk þáði ráðleggingar og tilboð bankastofnana eru háar upphæðir gengistryggðra lána vegna fyrirtækja og hvers kyns brasks sem stundað var í „góðærinu“.