Grétar Ólafsson, formaður Sjómannadeildar AFLs Starfsgreinafélags brá sér ásamt starfsmanni félagsins um borð í Bjart NK 121, ísfisktogara Síldarvinnslunnar í Neskaupsstað, þegar skipið var að leggja af stað í veiðiferð.
Tilefni heimsóknar formannsins var að kjósa nýjan trúnaðarmann en Sigurd Jacobsen hefur látið af því starfi og var Haraldur Egilsson kosinn í hans stað.
Ennfremur voru orlofskostir sumarsins kynntir og kvótamál og fyrningarleið og fleiri mál rædd.
S óknaráætlunin 20/20, til enduruppbyggingar atvinnulífs er nú í undirbúningi. Liður í undirbúningi áætlunarinnar er að halda þjóðfundi um land allt - alls 8 fundi. Sá fyrsti var um síðustu helgi á Egilsstöðum og voru boðaðir fulltrúar sveitarfélaga, hagsmunasamtaka og atvinnulífs og að auki handahófsvalinn hópur íbúa á Austurlandi.
Trúnaðarmenn AFLs Starfsgreinafélags og Rafiðnaðarsambands Íslands hjá ALCOA héldu fund með fulltrúum félaganna í morgun og hófu undirbúning gerð kjarasamnings við ALCOA Fjarðaál - en gildandi samningur rennur út í nóvember nk. Trúnaðarmenn fjölluðu aðallega um fyrirkomulag viðræðna, viðræðuáætlun og tímasetningu kröfugerðar og skipan í samninganefnd.
Samkvæmt tillögum trúnaðarmannanna verða alls 34 fulltrúar í samninganefnd félaganna.
Umsóknarfrestur um orlofsdvöl í íbúð félagsins við Alicante.
Íbúðin er í úthverfi bæjar sem heitir Torrevieja og er u.þ.b.
30 mínútna akstursfjarlægð frá Alicante.
Í húsinu eru 3 svefnherbergi og rúm fyrir 8 manns.
Allur annar búnaður er í húsinu (handklæði, rúmföt og stranddót).
Leigt er 2 vikur í einu og er leigan kr. 47.000, fyrir félagsmenn.
Fjölbreytt námsskrá AFLs Starfsgreinfélags í samvinnu við Þekkingarnet Austurlands fyrir byrjaða vorönn verður borin í hús á næstu dögum. Námskeið AFLs eru kynnt hér að neðan. Nánari upplýsingar um einstök námskeið gefa þær Bergþóra Arnórsdóttir, verkefnisstjóri Símenntunar hjá ÞNA, 471 2738, og Ragna Hreinsdóttir, 4700 311, náms-og starfsráðgjafi AFLs Starfsgreinafélags.