Ársfundur Stapa lífeyrissjóðs verður haldinn fimmtudaginn 28. maí n.k. í Hótel Reynihlíð Mývatnssveit og hefst kl. 14.00. Ársfundurinn er opinn öllum sjóðfélögum með málfrelsi og tillögurétti.
Atkvæðisrétt hafa þeir einir sem kosnir hafa verið á fundinn sem fulltrúar þeirra aðildarfélaga, sem að sjóðnum standa (svokallað fulltrúaráð). AFL á rétt á 19 fulltrúum og voru þeir kosnir á aðalfundi félagsins nú í maí.
Samfélagssjóður Alcoa í Bandaríkjunum hefur ákveðið að styrkja Starfsendurhæfingu Austurlands um 70.000 Bandaríkjadali, eða um 8,9 milljónir króna á tveggja ára tímabili. Steinþór Þórðarson, framkvæmdastjóri mannauðsmála hjá Alcoa Fjarðaáli, afhenti fyrri hluta styrksins, 35.000 Bandaríkjadali í dag, mánudaginn 18. maí.
Dagana 11. – 13. maí var haldið Trúnaðarmannanámskeið I í Kirkjumiðstöðinni á Eiðum. Alls mættu 18 trúnaðarmenn víðsvegar af félagssvæðinu. Námskeiðið þótti takast vel og það voru ánægðir og fjölfróðir trúnaðarmenn sem sneru heim á leið þann 13. Kennarar voru þau Helga Björk Pálsdóttir, Sigurlaug Gröndal og Sverrir Mar Albertsson og fengu þau mikið lof fyrir framsetningu sína á því efni sem þau höfðu á sínum snærum.
Aðalfundur AFLs Starfsgreinafélag sl. laugardag tók undir ályktun stjórnar félagsins þar sem lýst er áhyggjum með þróun mála innan Starfsgreinasambands Íslands - en Efling og Verkalýðsfélag Keflavíkur hafa bæði tilkynnt mögulega úrsögn úr SGS.
Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir var endurkjörin formaður AFLs á aðalfundi félagsins, sem haldinn var á Vopnafirði sl. laugardag. Fundinn sóttu um 60 félagsmenn en færð og veður hamlaði nokkuð gegn fundarsókn. Hornfirðingar sem sóttu fundinn fóru heiman frá um kl. 9 um morguninn og voru komnir heim aftur um kl. 3 aðfaranótt sunnudags.
Jim Robinson, fulltrúi United Steel Workers, ávarpar aðalfund ALCOA samsteypunnar í Pittsburgh í dag. Í ávarpi sínu, sem hann flytur m.a. í nafni AFLs og annarra verkalýðsfélaga víða um heim sem saman mynda ALCOA Workers Union Global Network, hvetur hann fyrirtækið til að sína ábyrgð í samskiptum sínum við starfsfólk fyrirtækisins í þeirri efnahagskreppu sem nú stendur og erfiðleikum fyrirtækisins.
AFL Starfsgreinafélag undirbýr nú kæru til Hæstaréttar eftir að Héraðsdómur Reykjavíkur vísaði í gær frá dómi máli AFLs á hendur Landsvaka, peningamarkaðssjóðs Landsbankans.
Stefna AFLs snerist ekki um peninga heldur upplýsingar - og þær vill héraðsdómur ekki að almenningur fái.